Velkomin/n á heimasíðu

Félag sjálfstætt starfandi sálfræðinga

25. apríl 2018

Árshátíð á föstudaginn!!

Við minnum félagsmenn á að hin árlega og glæsilega árshátíð FSS verður haldin núna á föstudaginn 27. apríl 2018. Við munum þá fagna starfsárinu og mæta prúðbúin til veislu í salnum okkar í SEM húsinu að Sléttuvegi 3, 103 Rvk.

Húsið opnar kl. 18 með freyðandi fordrykk en formlengt borðhald hefst kl. 19.

Þakið mun líklega allavega skekkjast þakið á húsinu þegar tenórarnir Davíð Ólafsson og Stefán Helgi Stefánsson mæta til leiks, syngja fyrir okkur og stjórna gleðinni en þar sem þema veislunnar er Great Gatsby (en okkur þótti frekar óviðeigandi að skella í fjárhættuspil samt) þá mun Danni töframaður spila með okkur með spilunum sínum og gabba okkur upp úr skónum í stað seðla úr veskjum. Þetta verður svakalegt kvöld og við lofum fullt af gleði.

Matgæðingar Galito restaurant sjá um hátíðarmatinn og með honum er í boði rautt og hvítt og gyllt freyðandi söngvatn...

Matseðill kvöldsins er þessi:

Forréttir
Grafinn lax með dill sósu, tvær tegundur maki (sushi), nautacarpaccio með ristuðum hnetum, andasalat með dvergappelsínum og svörtu sesami, kjúklingaspjót „toscana“, brauð og pestó.

Aðalréttur
Kryddjurtamarinerað lambalæri og hunangsgljáð kalkúnabringa. Meðlætið er hvítlaukskryddað kartöflusmælki, ofnbakað rótargrænmeti, villisveppasósa og ferskt salat

Eftirréttur
Jarðaber og makkarónur

Við munum svo dilla okkur saman eitthvað fram eftir kvöldi undir tónum uppfærðs playlista FSS og eiga góða kvöldstund saman. Vertu með og dekrum við okkur sjálf, gleðina og hvort annað. Það hefur verið sérstaklega gaman að fá töluvert marga nýja félaga í hópinn undanfarið og við hvetjum alla til að koma, líka þá sem þekkja ekki marga eða hafa ekki mikið verið að mæta. Við tökum vel á móti ykkur.

Að venju er árshátíðin öll í boði félagsins og eingöngu opin fyrir þá sem eru skráðir í félagið. Við hvetjum því alla sjálfstætt starfandi sálfræðinga sem eiga einhverra hluta vegna eftir að skrá sig í félagið að gera það hið snarasta og skrá sig um leið á árshátíðina :-)

Við hlökkum mikið til að sjá ykkur og minnum á að þó þemað Great Gatsby sé að miklu leyti hugsað fyrir skreytingar og stemmningu þá hvetjum við ykkur öll til að hafa það í huga í fata og/eða aukahlutavali ;-) 

Skráning fer fram hér: http://salfelag.is/a-dofinni/14/skraning

Stjórnin